Nánast tómir í byrjun október, hver er staðan núna?

Skrítið, þessi frétt virðist alveg hafa farið fram hjá mér á sínum tíma - kannski vegna þess að hún var sett inn kl 5:30? Ég rakst á hana núna fyrir tilviljun og fór að spá hver staðan væri á þessum sjóðum hjá Landsvirkjun núna þegar ætlunin er að ræsa loksins virkjunina. Það er hálfum mánuði seinna en átti að ræsa hana í "síðasta lagi" samkvæmt þessari frétt. Eru þá tafirnar orðnir sjö mánuðir? Er einhver að telja?
Hver ætli staðan verði svo á Landsvirkjun eftir að Alcoa fer fram á bætur - er einhver sem heldur að þeir munu EKKI fara fram á bætur? Það verður svo spennandi að sjá hvort upphæð bótanna verður ríkisleyndarmál eins og álverðið?
mbl.is Tafir hafa nánast tæmt sjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STEF hefur tekjur af "glæpastarfssemi"

STEF fær greiðslu fyrir hvern einasta geisladisk, vídeóspólu og mp3 spilara sem er seldur hérna.  Þessar greiðslur eru til komnar sem bætur fyrir meint brot á höfundarrétti sem mætti hugsanlega fremja með varningnum. Þeir eru því með feitan innkomulið sem er beintengdur starfseminni. Peningarnir hlaðast svo upp í margmilljóna sjóð sem, síðast þegar ég spurði, hefur aldrei verið úthlutað úr.

Þar að auki finnst mér fráleitt að tala um brot á höfundarrétti sem glæp. Ef fréttamiðill (nefnum engin nöfn) birtir ljósmynd sem hann á ekki höfundarréttinn af, má ég þá kalla ritstjórann glæpamann á opinberum vettvangi?


mbl.is „Þeir hagnast á glæpastarfsemi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugavert

Það er góð regla að þegar vitnað er í "rannsóknir" þá sé tilgreint hverjir unnu rannsóknina - það er jú mikilvægara heldur en hvaðan "fréttamaður" mbl endurorðaði eða þýddi greinina.

Ef mér skjátlast ekki er hér í raun um gamla rannsókn sem hefur verið gefin út aftur með tilliti til bíla af árgerð 2006. Þessi rannsókn hefur margoft verið hrakin, m.a. í þessari ágætu grein Prius Versus HUMMER: Exploding the Myth

 Þessi svokallaða rannsókn er algjört kjaftæði, í fyrsta lagi heitir fyrirtækið sem gerði rannsóknina "CNW Markaðssetningar Rannsóknir"! Ég mæli með því að fólk skoði heimasíðuna þeirra: http://cnwmr.com/ og sérstaklega að skoða hina síðuna þeirra sem þeir lýsa sjálfir með orðunum "Our site showing some of our alternative activities such as the company's Ford V8-powered '76 MGB" http://www.cnwmarketingresearch.com/

En það er meira, Á vefnum hjá þeim er áhugaverð grein um viðarhraðbátinn sem forstjórinn á þar sem hann segir "Electricity scares the tar out of me,"! Að auki sportar hraðbáturinn eftirlíkingu af húddskrauti af 1941 árgerð af Cadillac. http://cnwmr.com/missqt/
Svo hann er hræddur við rafmagn en virðist dýrka Cadillac 1941 - Hvort ætli sé líklegara að fyrirtækið hans myndi gera rannsókn sem er hliðholl tvinnbíl eða bensínhák?

Toppurinn yfir i-ið er svo þessi klausa hjá þeim um þessa rannsókn "This is a general-consumer report, not a technical document per se. It includes breakdowns of each vehicle’s total energy requirements from Dust to Dust but does not include issues of gigajuelles, kW hours or other unfriendly (to consumers) terms. Perhaps, in time, we will release our data in such technical terms."

Þetta er semsagt eins hlutdræg "rannsókn" og hægt er að ímynda sér og til að klóra yfir skítinn þá gefur þetta markaðssetningarrannsókna fyrirtæki ekki einu sinni út hvernig það kemst að þessum niðurstöðum vegna þess að það væri "of tæknilegt".

Þessi grein er búin að vera á ferð um vefinn í örugglega ár og hefur verið margoft verið hrakin - en við skulum ekki búast við því að það stoppi mbl - þeir vilja frekar binda nafn sitt við gáfulega staðhæfingu eins og "Jeppar umhverfisvænni en tvinnbílar".

 


mbl.is Jeppar umhverfisvænni en tvinnbílar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband